Vörukynning

Notendur Payday eru allt frá einyrkjum upp í stærri fyrirtæki. Einfaldaðu reikninga- og bókhaldsgerðina og eyddu tímanum frekar í annað.

Heildstætt og öflugt bókhaldskerfi

Payday er öflugt og heildstætt bókhaldskerfi, hannað til að gera rekstur fyrirtækja skilvirkari með sjálfvirkum ferlum, skýru verklagi og öllum lykilferlum á einum stað.

Reikningagerð sem sparar tíma og tryggir nákvæmni

Payday gerir þér kleift að búa til og senda reikninga á örfáum mínútum. Með beinni bankatengingu og rafrænum reikningum ertu alltaf á undan - og reikningarnir lenda beint í bókhaldi viðskiptavinarins.

Örugg og sjálfvirk launavinnsla

Launavinnslan í Payday er að fullu sjálfvirk. Kerfið reiknar út launatengd gjöld, sendir inn skilagreinar og tryggir að allt sé rétt - og á réttum tíma.

Full yfirsýn yfir útgjöld

Payday sér um að lesa rafræna reikninga og þú getur sent kvittanir beint í bókhaldið með einföldum hætti. Allt skráist sjálfkrafa jafnóðum og ekkert gleymist, en þannig hefur þú einnig alltaf skýra og áreiðanlega mynd af kostnaðarskiptingu rekstursins - án handvirkrar vinnu.

Rauntíma yfirsýn

Með rauntíma mælaborði og grafískum skýrslum færðu heildstæða yfirsýn yfir reksturinn - tekjur, gjöld, launagreiðslur og opinber skil, á einum stað. Upplýsingarnar sem þú þarft til að taka skýrar og upplýstar ákvarðanir.

Payday - Þar sem rekstur og áreiðanleiki mætast